Gott veður kallar á grillmat og ís...

Já, það er nú aldeilis fínt veður hjá okkur núna. Ekki hægt að kvarta yfir því. Ég er búin að vera úti í morgun að leika með stelpunni minni, yndislegt... Komum inn til að fá okkur smá hádegisverð og plana kvöldmatinn. Kíkti á holta.is og sá fullt af kjúklinga uppskriftum sem lofa góðu. Bæði fyrir grillið, ofninn og pönnuna. Gott fyrir kjúklingasjúklinga eins og mig. Ég ætla sko pottþétt að fá mér grillmat í kvöld og líta við í ísbúðinni seinna í dag. 

En nú er ég farin aftur út, er að fara að viðra tjaldið og njóta veðursins...

elinkris


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband