19.6.2008 | 09:51
Vélmenni lifnar við
Merkilegt... Ég velti því fyrir mér hvað græjan kostar? Hve miklum peningum er fólk til í að eyða í þessa þokkadís? Hmmm... hún hentar auðvitað snilldarvel á skrifborðið til að rétta nafnspjöldin. Svo syngur hún fyrir þig og kyssir þig þegar þú ert dapur eða þarft á uppliftingu að halda... Argasta snilld, ég ætla að fá fimm....
Ef hún hefði komið á markað hér á landi í fyrra hefðu örugglega einhverjir fjárfest í "gellunni", bara vísa-rað með gasgrillinu. Ég myndi nú samt frekar fjárfesta í ryksugu-róbota...
Ætli gellan endi ekki bara við hliðin'á fótanuddstækinu þegar búið er að sína öllum hana? Pæling...
elinkris
Vélmenni lifnar við | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.